Orkugangan fór fram á laugardaginn var í blíðskaparveðri. Að þessu sinni var boðið uppá 3 vegalengdir sökum snjóalaga. 20 km gangan var gengin frá Þeystareukjum á meðan 6 km og 1 km göngurnar fóru fram á félagssvæði skíðagöngudeildarinnar.
Gangan gekk vel fyrir sig og endaði á kjötsúpuveislu og verðlaunaafhendingu í matsal Norðlenska. Skíðagöngudeildin vill nota tækifærið og þakka keppendum og sjálboðaliðum fyrir skemmtilegan dag.
Heildarúrslit má nálgast hér: úrslit – heild
Úrslit eftir flokkum má nálgast hér: úrslit – flokkar