Orkugangan var haldin síðastliðin laugardag og heppnaðist með eindæmum vel. 97 þátttakendur tóku þátt í göngunni sem hefur aldrei verið fjölmennari.
Gangan varð mun fjölmennari en okkur óraði fyrir en alls voru þátttakendur 97 talsins. Það var mjög ánægjulegt að sjá hvað margir heimamenn mættu á laugardaginn, en alls tóku 32 aðilar frá Húsavík þátt í göngunni. Flestir mættu þó frá Akureyri en okkur telst til að 34 aðilar hafi mætt þaðan sem er afar ánægjulegt. Þá mættu 10 frá Ólafsfirði og aðrir 10 frá Ulli Reykjavík svo eitthvað sé nefnt. Þá voru þátttakendur frá Ísafirði, Ströndum, Siglufirði og Kópaskeri.
Dagurinn og framkvæmdin heppnaðist svo afar vel, a.m.k. höfum við ekki heyrt annað og ekkert stórvægilegt fór úr skorðum. Vonum við a.m.k. að allir hafi átt ánægjulegan dag og þökkum enn og aftur fyrir daginn.
Stjórnendur Orkugöngunnar þakka öllum þeim sem hjálpuðu við framkvæmd göngunnar afar vel fyrir framlagið. Það þarf ótrúlega margar hendur og hausa til að halda svona viðburð svo ekki sé talað um fjármuni og velvilja ýmissa aðila, s.s. einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélagsins.
Næsta skref er svo að ákveða hvort og þá hvernig við viljum halda slíka göngu. Það hafa t.d. komið fyrirspurninr erlendis frá um gönguna og þar á meðal frá aðilum sem hafa áhuga á að koma með hópa og vilja þá bjóða upp á meiri afþreyingu, þ .e. stoppa hér í einhvern tíma. Spurningin er, viljum við hressa eitthvað upp á þetta?